PARKET
Starfsmenn okkar búa að mikilli reynslu í parketlagningum og eru þekktir fyrir að vanda til verka. Við tökum að okkur bæði stór og smærri verkefni - vinnum fyrir einstaklinga, fyrirtæki sem og aðra verktaka.
Við vinnum með allar gerðir af parketi, hvort sem það er gegnheilt, harðparket eða vínylparket. Við vinnum náið með öllum helstu umboðsaðilum og birgjum landsins og getum veitt ráðgjöf varðandi val á gólfefni sé eftir því leitað.
Ef þú ert að velta fyrir þér að skipta um gólfefni á heimilinu þínu eða vinnustað, ekki hika við að hafa samband.






















